Innlent

Ólafur Þór Gunnarsson efstur hjá VG

Ólafur Þór Gunnarsson
Ólafur Þór Gunnarsson

Ólafur Þór Gunnarsson hlaut flest atkvæði í prófkjöri Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs (VG) í Kópavogi um helgina. Hann leiðir því lista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor.

Frá því var greint á vef VG þegar prófkjörið fór fram að Ólafur Þór hefði verið kominn með „ótvíræða forystu" í fyrsta sæti þegar um þriðjungur atkvæða hafði verið talinn.

Í öðru sæti í prófkjörinu varð Guðný Dóra Gestsdóttir, Karólína Einarsdóttir í þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða, Arnþór Sigurðsson í fimmta og Hreggviður Norðdahl í sjötta sæti.

Kjörsókn er sögð hafa verið 42,4 prósent. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×