Innlent

Flest bendir til þess að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Mynd/ Anton.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Mynd/ Anton.
Fjögurra klukkustunda fundi samninganefndar Íslands og Hollendinga og Breta um Icesave málið lauk í London í gærkvöldi án árangurs. Annar fundur hefur ekki verið boðaður en íslanska samninganefndin er þó ekki á heimleið.

Það stefnir því allt í að þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin á laugardag, en eftir hana er allt í óvissu um framhald viðræðna.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×