Sendiherra Tyrkja í Svíþjóð kallaður heim 12. mars 2010 06:59 Frá Stokkhólmi í Svíþjóð.
Sendiherra Tyrklands í Svíþjóð hefur verið kallaður heim vegna þess að sænska þingið samþykkti í gær þingsályktun þess efnis að þjóðarmorð hafi verið framið á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. Armenía sem og fjölmargir sagnfræðingar halda því fram að Tyrkir hafi myrt allt að 1,5 milljónir Armena í fyrri heimsstyrjöldinni. Það hafa Tyrkir hins vegar aldrei viðurkennt og fullyrt að mun færri Armenar hafi látist. Þeir hafa jafnframt bent á að fjölmargir Tyrkir hafi fallið í átökunum sem brutust út eftir að Armenar stilltu sér upp við hlið Rússa. Meira en 20 ríki telja aftur á móti að Tyrkir hafir framið þjóðarmorð á Armenum. Sænska þingið samþykkti í gær þingsályktunartillögu þess efnis með naumum meirihluta eða með 131 atkvæði gegn 130. 88 þingmenn sátu hjá en það var stjórnarandstaðan sem lagði tillöguna fram. Tyrknesk stjórnvöld brugðust ókvæða við og skipuðu sendiherra sínum í Svíþjóð að halda strax heim. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir að atkvæðagreiðslan hafi verið mistök. Hann ítrekaði að stefna ríkisstjórnarinnar gagnvart Tyrklandi og inngöngu landsins í ESB væri óbreytt. Stutt er síðan að fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti samskonar tillögu einnig með naumum meirihluta. Sendiherra Tyrkja í Washington var samstundis kallaður heim.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sjá meira