Merkingar á nautahakki ófullnægjandi 12. mars 2010 09:10 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Í of mörgum tilvikum eru merkingar á umbúðum fyrir nautahakk ekki í samræmi við gildandi reglur. Þessu verða kjötiðnaðarstöðvar að kippa í liðinn tafarlaust. Þetta er meðal niðurstaðna í gæðakönnun sem Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin ákváðu að gera í framhaldi af umræðum um gæði á nautahakki. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytið styrkti verkefnið að hluta. Matís sá um framkvæmd könnunarinnar, sem náði til átta tegunda nautahakks, að fram kemur á vef Neytendasamtakanna. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru að þrátt fyrir fullyrðingar um annað reyndist ekkert sýnanna innihalda aðrar kjöttegundir en nautakjöt. Ekki fannst sojaprótein í neinum sýnanna, en því hefur verið haldið fram að kjötiðnaðarstöðvar drýgi nautahakk með sojapróteini. Í sex sýnum var viðbætt vatn og í einu tilvikanna kom það ekki fram á umbúðum. Gjarnan er í slíkum tilvikum bætt við kartöflutrefjum. Fram kemur í skýrslu Matís að endurskoða þurfi reglugerð um kjöt og kjötvörur og taka bæði samtökin undir það. Meðal annars er bent á að reglugerðin sé óljós varðandi viðbætt vatn. Á vef Neytendasamtakanna kemur fram að það sé skoðun samtakanna og Landssambands kúabænda að ekki eigi að heimila að bæta öðrum efnum í nautahakk, án þess að slíkt komi skýrt fram í vöruheiti og innihaldslýsingu. Í of mörgum tilvikum voru merkingar á umbúðum ekki í samræmi við gildandi reglur. Þessu verða kjötiðnaðarstöðvar að kippa í liðinn tafarlaust, að mati Neytendasamtakanna. Þá kom fram í könnuninni að í tveimur tilvikum reyndist fituinnihald meira en gefið er upp á umbúðum. Slíkt er að sjálfsögðu óásættanlegt enda varðar það við lög, segir á vef Neytendasamtakanna. Það er niðurstaða skýrslunnar að flestir þættir sem kannaðir voru varðandi nautahakk séu í lagi, þó eru nokkur atriði sem þarf að laga nú þegar. Neytendasamtökin segja að þessar niðurstöður leysi opinbera eftirlitsaðila ekki á nokkurn hátt frá þeirri skyldu sinni, að sjá til þess að ákvæði laga og reglna um matvæli, sem og aðrar neysluvörur sé framfylgt.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Sjá meira