Engar breytingar gerðar á ráðherraliðinu á næstu vikum 12. mars 2010 12:10 Vangaveltur hafa verið uppi um mögulega endurkomu Ögmundar Jónassonar í ráðherrastól. Mynd/Stefán Karlsson.
Engar breytingar verðar gerðar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar á næstu vikum að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Hann útilokar þó ekki að Ögmundur Jónasson setjist í ráðherrastól síðar á kjörtímabilinu. Vangaveltur hafa verið uppi um mögulega endurkomu Ögmundar Jónassonar í ráðherrastól en Ögmundur sagði af sér á síðasta ári vegna Icesave málsins. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að engar breytingar verði gerðar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar á næstu vikum. „Það eru bollaleggingar í fjölmiðlum og algerlega ótímabær umræða enda ekki eitthvað sem menn útkljá í fjölmiðlum. Það ræðum við í okkar hópi. Það liggur fyrir að það verða breytingar á skipan mála innan stjórnarráðsins í áföngum á kjörtímabili. Fyrsta skrefið hefur þegar verið tekið en næstu áfangar hafa ekki verið tímasettir en þeir eru framundan. Málið er í þessum farvegi og það er verið að vinna í því," segir Steingrímur. Steingrímur útilokar þó ekki endurkomu Ögmundar í ráðherrastól en segir allt tal um að ríkisstjórnin standi veik úr lausu lofti gripið. „Fjölmiðlar eru margir hverjir komnir langt fram úr sér. Ég held að toppnum hafi verið náð í morgun þegar Ríkisútvarpið fékk einhvern sérfræðing til að ræða möguleikann á utanþingsstjórn. Bíddu nú við, það situr hérna meirihlutastjórn og það er enginn bilbugur á henni. Þannig að menn geta haft gaman af svona sagnfræðilegum vangaveltum um utanþingsstjórnir en það hefur bara verið ein skipuð í sögu lýðveldisins. Það er engin þörf á slíkum bollaleggingum núna enda ekki það sem landið þarf á að halda," segir Steingrímur.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Eldur í Árbænum Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Sjá meira