Ákærðir fyrir að smygla fjórum kílóum af amfetamíni til Íslands 12. mars 2010 11:06 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Tveir karlmenn á fimmtugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að flytja rétt tæplega fjögur kíló af amfetamíni til Íslands frá Rotterdam í Hollandi. Efnin komu til landsins í janúar með flutningaskipinu Arnarfelli en annar mannanna, Jónþór Þórisson, sótti efnin um borð í skipið á Íslandi. Lögreglan fann þau svo skömmu síðar innanklæða á honum. Eftir að lögregla haldlagði fíkniefnin var gerviefnum komið fyrir í stað þeirra og að beiðni lögreglu afhenti Jónþór gerviefnin áfram til Garðars Héðins Sigurðssonar, sem er einnig ákærður í málinu, eins og til hafði staðið með fíkniefnin. Í ákæruskjali segir að Garðar Héðinn hafi hitt Jónþór í nokkur skipti í Reykjavík á seinni hluta ársins 2009 og skipulögðu þeir þá innflutning efnanna. Garðar á að hafa móttekið fíkniefnin mánudaginn 4. janúar í Breda í Hollandi og haft þau í vörslum sínum ásamt óþekktum þriðja manni uns hann flutti þau til Rotterdam þar sem hann afhenti Jónþóri efnin þann 5. janúar í því skyni að hann flytti þau til Íslands og afhenti sér á ný. Mennirnir játuðu sök í Héraðsdómi Reykjavíkur en halda því fram að þeir séu burðardýr.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira