Innlent

Þrír ákærðir

Þrír tæplega þrítugir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir kannabisræktun í Hafnarfirði.

Mönnunum er gefið að sök að hafa í maí á síðasta ári haft í fórum sínum í sölu- og dreifingar­skyni 278 kannabisplöntur, rúm 758 grömm af kannabislaufum og tæp 17 grömm af maríjúana.

Þá er einn mannanna ákærður fyrir að hafa slatta af kannabisefnum í fórum sínum svo og amfetamín í neyslupakkningu.

Annar þremenninganna er einnig ákærður fyrir að hafa maríjúana í fórum sínum á heimili sínu. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×