Erlent

Tala látinna fer hækkandi í Chile

Frá borginni Concepcion í Chile. Mynd/AP
Frá borginni Concepcion í Chile. Mynd/AP
Tala látinna eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir Chile í morgun fer hækkandi og segja nýjustu tölur að rúmlega sextíu hafi farist. Skjálftinn var átta komma átta á Richter. Utanríkisráðuneytið hefur upplýsingar um að minnsta kosti fjóra Íslendinga í landinu. Engar fréttir hafa borist af þeim í morgun.

Upptök skjálftans sem var átta komma átta á Richter voru rúmlega níutíu kílómetra norð- austur af borginni Concepcion og rúmlega 320 kílómetra suðvestur af borginni Santiago. Óttast er að fleiri hafi látist og slasast í skjálftanum en tölur eru enn á reiki. Tala látinna fer hækkandi. Gefin hefur verið út viðvörun vegna mögulegrar flóðbylgjuhættu í Chile, Perú og Ekvador.

Forseti landsins Michelle Bachelet hefur greint frá því við fjölmiðla að stór flóðbylgja hafi skollið á eyjum í grennd við Chile. Á mörgum svæðum er rafmagnslaust, allar símalínur liggja niðri og erfitt reynist að ná sambandi inn við landið.

Utanríkisráðuneytið minnir á neyðarsímann



Urður Gunnarsdóttir upplýsingafulltrúi Utanríkisráðuneytisins segir ráðuneytið hafa upplýsingar um að minnsta kosti fjóra Íslendinga í Chile að svo stöddu.

„Við erum í sambandi við alla ræðismenn okkar og við hin Norðurlöndin til að reyna afla upplýsinga um þá. Það virðist vera erfitt að ná sambandi við allavega hluta landsins," segir Urður.

Utanríkisráðuneytið óskar eftir upplýsingum frá fólki hér á landi um hugsanlega fleiri Íslendinga í Chile og er þeim ráðlagt að hringja í neyðarsímann 545-9900.

Hafa eftirlit með lokafrágangi á nýju varðskipi

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir sjö manns á vegum gæslunnar stadda í borginni Conception í Chile, þar af tvo Íslendinga og fimm Dani. Þeir hafa haft eftirlit með lokafrágangi á nýja varðskipinu sem chilenski sjóherinn byggir fyrir ÍSlendinga.

„Við höfum ekki náð sambandi við þá í allan morgun og höfum af því töluverðar áhyggjur því þarna virðist vera mjög alvarlegt ástand," segir Georg.

Þá eru einnig tveir Íslendingar á vegum Ísfélags Vestmannaeyja staddir á sömu slóðum en þeir eru einnig að fylgjast með nýju skipi í eigu félagsins.

Þetta er stærsti jarðskjálftinn sem hefur riðið yfir landið í 25 ár. Stærsti jarðskjálfti tuttugustu aldar eða 9,5 á Richter skók Chile árið 1960 og varð 1655 manns að bana að því er fram kemur á fréttavef BBC.


Tengdar fréttir

Íslendingar í Chile

Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um fjóra Íslendinga í Chile þar á meðal á vegum Landhelgisgæslunnar. Öflugur jarðskjálfti upp á 8,8 á Richter skók landið í morgun. Ekki er vitað hvort Íslendingarnir hafi verið á skjálftasvæðinu.

Öflugur jarðskjálfti í Chile

Talið er að minnsta kost sex hafi látist og fleiri slasast í öflugum jarðskjálfta upp á 8,8 á Richter sem skók Chile í Suður Ameríku í morgun. Þetta er stærsti jarðskjálftinn sem hefur riðið yfir landið í 25 ár. Óttast er að fleiri hafi látist og slasast en tölur um það eru á reiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×