Fréttablaðskössum og lausasölustöðum fjölgar 27. maí 2010 16:01
Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Skilin verða skerpt, þannig að blaðinu er dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæði, en annars staðar verður blaðið selt á kr. 150 eintakið. Kjarnasvæði Fréttablaðsins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Borgarnes, Akranes, Reykjanesbær, Þorlákshöfn, Keilir, Garður, Sandgerði, Grindavík og Vogar. Á þessu svæði verður blaðinu hér eftir sem hingað til ýmist dreift frítt í lúgur eða í Fréttablaðskassa sem staðsettir eru á völdum stöðum inni í íbúðahverfum. Nýbreytnin í dreifingu á kjarnasvæðum felst í að hætt verður frídreifingu í verslunum og á bensínstöðvum en blaðið í staðinn selt í lausasölu á sömu stöðum. Um leið verður lausasölustöðum fjölgað til muna auk þess sem fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður rúmlega þrefaldaður og fer úr u.þ.b. 60 í um 170 talsins. Þessar breytingar á dreifingu Fréttablaðsins koma í kjölfar breytinga sem voru innleiddar sl. vetur þegar lausasala var tekin upp í verslunum víða um land utan kjarnasvæðis. Samhliða því að blaðið verður nú selt í verslunum, bensínstöðvum og víðar á kjarnasvæði verður gert átak í að fjölga lausasölustöðum utan kjarnasvæðis og aðgengi að blaðinu þannig bætt stórlega. Þetta fyrirkomulag dreifingar hefur gefist mjög vel og til marks um það hefur lestur blaðsins aukist um 4,2 prósentustig frá því að lausasala blaðsins var tekin upp á landsbyggðinni. Þessu til viðbótar verða á ýmsum stöðum, til dæmis á flugvöllum og í öðrum samgöngumiðstöðvum, settir upp sjálfsalar þar sem hægt verður að nálgast blaðið með einföldum og þægilegum hætti. Sama verð mun gilda á öllum sölustöðum, kr. 150. Þessar breytingar eru liður í að auka hagræði í útgáfu og dreifingu blaðsins. Það fellur vel að því grunnstefi í útgáfu blaðsins að hitta sem flesta lesendur heima eða þar sem það er mögulegt vegna kostnaðar. Á öðrum stöðum er blaðið aðgengilegt gegn vægu gjaldi. Með þessu móti er einnig hægt að þjóna lesendum blaðsins betur, nú þegar sumarleyfistíminn gengur í hönd og landsmenn eru í auknum mæli á faraldsfæti. Fréttablaðinu er ekki dreift ókeypis til fyrirtækja. Þeim stendur til boða, rétt eins og heimili sem ekki fá blaðið frítt inn um lúguna, að kaupa blaðið í áskrift, fyrir kr. 2.890 á mánuði sem er mun hagkvæmari kostur en lausasala. Póstsending Fréttablaðsins utan höfuðborgarsvæðisins er háð dreifingarsvæði Pósthússins og dreifingaráætlun Íslandspósts utan þess. Fréttablaðið er gefið út daglega í um 90 þúsund eintökum og stendur ekki til að minnka það upplag. Auk þess er Fréttablaðið aðgengilegt ókeypis á rafrænu formi á visir.is. Þá geta lesendur fengið blaðið sent í tölvupósti alla útgáfudaga og án endurgjalds.
Mest lesið Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Sjá meira