Innlent

Ríkissaksóknari: „Hreinlega yfirsást þetta og það er miður“

Valtýr Sigurðsson.
Valtýr Sigurðsson.

„Skýringin er sú að ég fór ekki með málið sjálfur heldur var það í höndum saksóknarans sem undirritaði ákæruna," segir Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, en hann þurfti að draga ákæru á hendur níu mótmælenda fyrir árás á Alþingi, til baka vegna fjölskyldutengsla við þingvörð sem lagði fram bótakröfu vegna málsins.

Í ljós kom að þingvörðurinn er hálf systir eiginkonu Valtýs.

Ákæran er á ábyrgð Valtýs þrátt fyrir að saksóknari embættisins hafi séð um málið og undirritað hana.

„Ég ber ábyrgðina og mér hreinlega yfirsást þetta og það er miður," segir Valtýr spurður hvenær hann hafi gert sér grein fyrir því að þingvörðurinn væri hálf systir eiginkonu hans.

Valtýr hefur þegar sent bréf til dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir að ný saksóknari verði skipaður til þess að gefa út ákæru á hendur mótmælendanna.

„Það verður settur nýr saksóknari og hann hefur þrjá mánuði til þess að gefa út ákæru kjósi hann að gera það," segir Valtýr.

Spurður hvort þetta sé ekki frekar klaufalegt hjá embættinu að hafa ekki áttað sig á tengslunum fyrr svarar Valtýr: „Við erum með yfir 400 mál sem við erum að fást við hérna."

Þrátt fyrir að ákæran hafi verið dregin til baka þá hefur ákvörðunin engin áhrif á rannsókn lögreglunnar á málinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×