Leggja grunn að fækkun kjarnavopna 9. apríl 2010 06:00 Barack Obama og Dmitri Medvedev harla ánægðir með dagsverkið. nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir nýja afvopnunarsamninginn leggja grunn að enn frekari fækkun kjarnorkuvopna á næstu árum. Hann undirritaði samninginn í Tékklandi í gær ásamt Dimitri Medvedev Rússlandsforseta. Nærri ár er síðan samningaviðræðurnar hófust, og hefur á ýmsu gengið þennan tíma. Upphaflega átti nýi samningurinn að taka gildi ekki síðar en í desember, þegar hinn tuttugu ára gamli START-samningur rann út. Þann samning höfðu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi undirritað árið 1991, skömmu fyrir fall Sovétríkjanna. Samningurinn felur það í sér að langdrægum kjarnorkuvopnum Rússa og Bandaríkjanna er fækkað um þriðjung frá því sem nú er. Hann tekur þó ekki gildi fyrr en þing beggja þjóða hafa staðfest hann. Báðir voru þeir Obama og Medvedev ánægðir með þennan síðbúna árangur og bjartsýnir á framhaldið. Enn eru þó óleyst deilumál milli ríkjanna, ekki síst varðandi áform Bandaríkjanna um að koma sér upp eldflaugavörnum í Evrópu þrátt fyrir að Rússar líti á það sem ógn við sig. Síðastliðið haust sagði Obama að Bandaríkjamenn væru hættir við áform um að koma sér upp eldflaugavarnarstöðvum í Póllandi og Tékklandi, en Bandaríkin hafa þó enn áform um að koma sér upp endurbættum eldflaugavörnum í Evrópu, meðal annars með aðstöðu í Rúmeníu. Rússar hafa hótað því að segja upp þessum nýja samningi ef þeir komast að þeirri niðurstöðu að þeim stafi hætta af þessum áformum. Obama sagði þeim þó engan veginn beint gegn Rússum og Medvedev sagðist sannfærður um að málamiðlun takist um málið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Fleiri fréttir Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Sjá meira