Sýslumaðurinn á Siglufirði annast málefni sanngirnisbóta 30. júní 2010 10:17
Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur falið sýslumanninum á Siglufirði að annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum á vegum ríkisins. Þá mun dómsmála- og mannréttindaráðuneytið auglýsa á næstu dögum laust til umsóknar starf tengiliðar sem meðal annars hefur það hlutverk að koma á framfæri upplýsingum til þeirra sem kunna að eiga bótarétt samkvæmt lögunum. Verkefni sýslumanns felst meðal annars í því að skora á þá sem telja sig eiga rétt til bóta samkvæmt lögum um sanngirnisbætur að lýsa kröfum sínum með auglýsingu eða svo kallaðri innköllun í Lögbirtingablaði og dagblaði. Þeir sem telja sig eiga rétt til bóta skulu lýsa kröfum sínum innan þriggja mánaða frá síðari birtingu í Lögbirtingablaði á sérstöku eyðublaði sem sýslumaður útbýr. Hann skal jafnframt fara yfir þær kröfur sem berast og taka afstöðu til þeirra. Að því búnu skal hann gera viðkomandi einstaklingi skriflegt og bindandi sáttaboð að höfðu samráði við ráðherra, að því er fram kemur í tilkynningu frá dómsmála- og mannaréttindaráðuneytinu. Embætti sýslumannsins á Siglufirði annast alla umsýslu og afgreiðslu mála hjá bótanefnd samkvæmt lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota. Er starfsmaður bótanefndar staðsettur hjá embættinu. Hjá embættinu er því bæði til staðar þekking og reynsla við meðferð bótakrafna sem gerir embættið vel í stakk búið til þess að takast á hendur þessi verkefni.Tengiliður ráðinn fyrir ágústlok Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið mun á næstu dögum auglýsa laust til umsóknar starf tengiliðar sem skal leiðbeina þeim sem til hans leita um framsetningu bótakrafna eftir að sýslumaður hefur kallað eftir þeim. Hann skal einnig aðstoða fyrrverandi vistmenn sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar við að sækja sér þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endurhæfingu og menntun. Um fullt starf að ræða og ráðgert er að starfsstöð tengiliðar verði hjá opinberri stofnun á grundvelli þjónustusamnings. Gert er ráð fyrir því að búið verði að ráða í starf tengiliðar fyrir ágústlok og stefnt er að því að innköllun krafna hefjist í september.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira