Margskipti um dulargervi dagana fyrir sprenginguna 12. september 2010 19:38 Danska lögreglan er engu nær um hver hann er, sprengjumaðurinn á Hótel Jörgensen sem margskipti um dulargervi dagana fyrir sprenginguna.
Lögreglan í Danmörku hefur birt myndir úr eftirlitsmyndavélum hótelsins þar sem sprengja sprakk á föstudaginn. Hún hefur enn ekki náð að bera kennsl á manninn sem hún hefur í haldi grunaðan um að bera ábyrgð á sprengingunni. Eina sem lögreglan veit er að maðurinn er um fertugt, og talar þýsku, frönsku og ensku. Hann hefur ekki sagt eitt aukatekið orð við lögreglu síðan hann var handtekinn en hann var með að minnsta kosti þrjú vegabréf í fórum sínum, meðal annars frá Belgíu og Lúxemborg. Á myndskeiðum sem lögregla hefur birt úr eftirlitsmyndavélum sést maðurinn fara inn á klósett Jörgensen hótelsins á föstudaginn. Þar var hann í 38 mínútur að sýsla við sprengiefni sem hann hafði í fórum sínum. Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis hjá manninum því lítil sprenging varð inn á klósettinu og særðist maðurinn nokkuð við það. Á myndskeiðinu sést þegar hann leggur á flótta, nokkuð ringlaður en maðurinn fannst tveimur klukkustundum síðar í Örsstedsparken sem er hinum megin við götuna. Höfuðáhersla lögreglu nú er að finna út hver þessi maður er og hvað hann ætlaði sér. Ekstrabladet sagði frá því í dag að í fórum mannsins hefði fundist kort þar sem heimilisfang Jótlandspóstins var merkt sérstaklega en það er blaðið sem birti skopmyndir af Múhameð spámanni. Danska lögreglan hefur ekki viljað staðfesta að Jótlandspósturinn hafi verið sérstakt skotmark mannsins en segir hins vegar að allt bendi til þess að um misheppnað hryðjuverk sé að ræða.
Tengdar fréttir Önnur sprenging í Kaupmannahöfn Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. 10. september 2010 16:55 Sprengingin ekki hryðjuverk Nú er talið að ekki hafi verið um tilraun til hryðjuverks að ræða þegar að sprengja sprakk á hóteli í Kaupmannahöfn í dag. 10. september 2010 20:50 Öryggisgæsla hert við heimili Westergaard Lögreglan í Danmörku hefur upplýsingar um að dagblaðið Jótlandspósturinn hafi verið skotmark mannsins sem er í haldi eftir að sprengja sprakk í miðborg Kaupmannahafnar. Ritstjórar blaðsins eru í strangri öryggisgæslu. 12. september 2010 12:15 Neitar að svara spurningum Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim. 11. september 2010 09:48 Talinn hafa ætlað að myrða ritstjóra Jótlandspóstsins Danska lögreglan fann kort með heimilisfangi Jótlandspóstsins á hótelherbergi mannsins sem talinn er bera ábyrgð á sprengjunni sem sprakk í Kaupmannahöfn á föstudag. Grunur leikur á að maðurinn hafi ætlað ráða ritstjóra blaðsins af dögum með sprengjutilræði en Jótlandspósturinn vakti mikla reiði á meðal múslima með birtingu sinn á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Ritstjórarnir hafa um helgina verið í mikilli gæslu og hafa klæðst skotheldum vestum. 12. september 2010 09:49 Sjálfsmorðssprengjuárás í Kaupmannahöfn Karlmaður reyndi fyrir stundu að gera sjálfsmorðssprengjuárás á hóteli við Ísraelstorg í Kaupmannahöfn. 10. september 2010 14:31 Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Sjá meira
Önnur sprenging í Kaupmannahöfn Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. 10. september 2010 16:55
Sprengingin ekki hryðjuverk Nú er talið að ekki hafi verið um tilraun til hryðjuverks að ræða þegar að sprengja sprakk á hóteli í Kaupmannahöfn í dag. 10. september 2010 20:50
Öryggisgæsla hert við heimili Westergaard Lögreglan í Danmörku hefur upplýsingar um að dagblaðið Jótlandspósturinn hafi verið skotmark mannsins sem er í haldi eftir að sprengja sprakk í miðborg Kaupmannahafnar. Ritstjórar blaðsins eru í strangri öryggisgæslu. 12. september 2010 12:15
Neitar að svara spurningum Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim. 11. september 2010 09:48
Talinn hafa ætlað að myrða ritstjóra Jótlandspóstsins Danska lögreglan fann kort með heimilisfangi Jótlandspóstsins á hótelherbergi mannsins sem talinn er bera ábyrgð á sprengjunni sem sprakk í Kaupmannahöfn á föstudag. Grunur leikur á að maðurinn hafi ætlað ráða ritstjóra blaðsins af dögum með sprengjutilræði en Jótlandspósturinn vakti mikla reiði á meðal múslima með birtingu sinn á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Ritstjórarnir hafa um helgina verið í mikilli gæslu og hafa klæðst skotheldum vestum. 12. september 2010 09:49
Sjálfsmorðssprengjuárás í Kaupmannahöfn Karlmaður reyndi fyrir stundu að gera sjálfsmorðssprengjuárás á hóteli við Ísraelstorg í Kaupmannahöfn. 10. september 2010 14:31