Bolungarvík að ná vopnum sínum á ný 14. janúar 2010 05:00 Bolvíkingar voru um þrettán hundruð þegar mest var en eru um 900 í dag. mynd/elías jónatansson
Útsvarstekjur Bolungarvíkurkaupstaðar voru tæplega fjörutíu prósentum hærri árið 2009 en árið á undan. Þetta er stórt skref í viðsnúningi í fjármálum sveitarfélagsins, segir Elías Jónatansson bæjarstjóri. Á móti kemur að framlög Jöfnunarsjóðs lækkuðu um mikið á sama tíma og því nauðsynlegt að fara jafnframt í hagræðingu og sparnaðaraðgerðir. „Við höfum tekið hraustlega á okkar málum, má segja. Við fórum í samstarf við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem gerði mjög stífar kröfur um viðsnúninginn. Þeir fóru beinlínis fram á að endurskipulagningunni væri lokið árið 2010“, segir Elías. „Þess vegna varð ekki umflúið að skera niður og hækka útsvarið um tíu prósent.“ Elías segir að þjónustugjöld hafi verið hækkuð en sárast hafi verið að þurfa að fækka stöðugildum um tólf. Fyrir lítið sveitarfélag er það þungt högg enda um fimmtán prósent fækkun starfa að ræða. „Það má reyndar segja að við höfum skorið þar sem eitthvað var yfirleitt að hafa.“ Elías segir samstarfið við eftirlitsnefndina hafa gengið vel og í gildi sé samningur til ársins 2011. Reiknað er með að skatttekjur séu þær sömu árið 2010 og þær voru 2008. Hagræðing í skólarekstri hefur verið mikið í umræðunni um hagræðingu innan sveitarfélaganna en ráðgjafar Bolungarvíkur komust að þeirri niðurstöðu að samrekstur grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla staðarins myndi ekki svara kostnaði þegar haft væri í huga það rask sem slíkri aðgerð fylgir. „Eins hangir mun fleira á spýtunni. Það eru ekki allir sammála því að það eigi að sameina. Sameining getur valdið erfiðleikum í stjórnun og aðstæður komið upp sem við viljum forðast. Á þessum tímapunkti viljum við einfalda málin og ná um þau víðtækri sátt.“ Útsvarstekjur á Vestfjörðum hækkuðu um 15,1 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Útsvarstekjur í Bolungarvík hækkuðu um tæp fjörutíu prósent. Þrennt kemur til: Sjávarútvegurinn skilar meiru, framkvæmdir við jarðgöng og flóðagarða auk fyrrnefndrar hækkunar útsvars. Bolungarvík, hefur að sögn Elíasar, náð vopnum sínum á ný í sjávarútvegi en afli sem landað var á staðnum árið 2009 var fimmtán prósentum meiri en árið á undan. Eins er horft til ferðaþjónustunnar eftir víðtækar samgöngubætur sem hafa komið Bolvíkingum til góða. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira