Leigan fyrir skólann að sliga bæinn 6. mars 2010 02:00 Borgarbyggð tók á sig gengistryggðar skuldbindingar til að tryggja rekstur menntaskóla í sveitarfélaginu.
1.700 milljóna króna leiguskuldbindingar Borgarbyggðar vegna Menntaskóla Borgarfjarðar valda sveitarfélaginu miklum erfiðleikum. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent sveitarstjórninni bréf, þar sem segir að þessar skuldbindingar valdi mestu um að skuldir og skuldbindingar Borgarbyggðar eru yfir viðunandi mörkum. Í bréfinu kemur fram að sveitarstjórnin vinni að því að ljúka samningum um framtíð mennta- og menningarhúss bæjarins. Það er í eigu Menntaborgar, einkahlutafélags sem sveitarfélagið og Sparisjóður Mýrasýslu stofnuðu árið 2006. Félaginu var lagt til 150 milljóna hlutafé til að byggja húsnæði undir framhaldsskóla í Borgarnesi og sjá um rekstur þess. Skuldbindingar sveitarfélagsins tengdar þessu námu um 1.700 milljónum króna síðastliðið vor, að mati KPMG. „EFS telur mikilvægt að allri óvissu vegna þess máls verði eytt svo fljótt sem auðið er og unnið verði markvisst að því að lækka skuldabyrði sveitarfélagsins,“ segir í bréfinu, sem EFS sendi á miðvikudag. Eftirlitsnefndin hyggst fylgjast með fjármálum sveitarfélagsins og kallar eftir ársfjórðungslegum reikningsskilum um hvernig reksturinn samræmist fjárhagsáætlun ársins. Hún gerir ráð fyrir hallalausum rekstri Borgarbyggðar þetta árið. - pg
Mest lesið Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Greiðvikni kom í bakið á fjórum Innlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent