Innlent

Tveir tókust á við útidyr konu

Ein líkamsárás var nýverið kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Hún átti sér stað fyrir utan heimahús.

Þar hafði maður sem vildi komast inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar lent í útistöðum við mann sem reyndi að koma í veg fyrir það. Endaði þessi ágreiningur með handalögmálum án þess þó að nokkur hafi hlotið alvarlega áverka. Jafnframt braut maðurinn allar rúður í útidyrahurð húss sambýliskonunnar fyrrverandi.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×