Erlent

Tólf fórust í flóðum í Póllandi

Frá Kozanow í suðvesturhluta Póllands í gær. Mynd/AP
Frá Kozanow í suðvesturhluta Póllands í gær. Mynd/AP
Að minnsta kosti 12 hafa farist í miklum flóðum í Póllandi um helgina. Um 20 þúsund Pólverjar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og þá er rafmagnslaust víða. Í kjölfar mikillar úrkomu flæddu árnar Vistula, Odra og Warta yfir bakka sína.

Á fjórða þúsund pólskir hermenn aðstoða björgunarsveitarmenn við björgunarstörf. Til þess nota þeir meðal annars 35 báta og níu þyrlur. Þá er reynt er að verja mannvirki með sandpokum og vatnsdælum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×