Enski boltinn

Vil láta minnast mín sem stríðsmanns

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar

Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur verið sjóðheitur á tímabilinu og skorað sautján mörk það sem af er þessari leiktíð. 

Hann er í harðri samkeppni við framherja Manchester United, Wayne Rooney, um markakóngstitilinn en Rooney hefur skorað tuttugu og eitt mark í vetur.

„Ég ætla mér að verða markahæstur á Englandi. Ég vil sjá til þess að fólk muni eftir mér sem stríðsmanninum Drogba,“ sagði markaskorarinn við The Sun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×