Innlent

Fólk hvatt til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir

Mynd/Anton Brink
Lögreglan hvetur fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir, ekki síst í íbúðahverfum. Innbrot á heimili eiga sér oft stað að degi til og þá geta upplýsingar, til dæmis frá nágrönnum, ráðið miklu, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir að það sem fólki kunni að finnast lítilfjörlegt geti orðið til þess að upplýsa mál. „Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum og bifreiðum en gott er að skrifa slíkt hjá sér ef fólk tekur eftir einhverju óvenjulegu í sínu nánasta umhverfi."

Sama gildir um bílnúmer þar sem slíkar upplýsingar geta komið lögreglu á sporið. „Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×