Erlent

Hitametin féllu víða í sumar

Kæfandi hiti í Japan. Tugir þúsunda hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús.
nordicphotos/AFP
Kæfandi hiti í Japan. Tugir þúsunda hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús. nordicphotos/AFP

Gríðarleg hitabylgja hefur verið í Japan í sumar og mælast hitarnir þar þetta sumarið meiri en nokkru sinni, en mælingar þar hófust árið 1898.

Í höfuðborginni Tókíó hefur hitinn farið upp í 37 stig. Tugir þúsunda hafa lagst inn á sjúkrahús vegna hitanna og 150 látið lífið.

Japan er þar reyndar ekkert einsdæmi, því alls hafa sautján lönd á norðurhveli jarðar upplifað heitara sumar þetta árið en nokkru sinni hefur mælst.

Þannig hafa hitametin fallið í Rússlandi, víða í Bandaríkjunum, víða í Mið-Austurlöndum og í Shanghaí í Kína, svo nokkuð sé nefnt.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×