Skerðingin á starfsfé LSH er 18 milljarðar 4. mars 2010 04:00 LSH í Fossvogi Þegar nýtt háskólasjúkrahús verður tekið í notkun úreldast byggingarnar í Fossvogi. Ekki er gert ráð fyrir kaupum á nýjum tækjum við flutninginn. fréttablaðið/gva „
Ef framlag ríkisins hefði haldist óbreytt síðasta áratug, og við hefðum stækkað í takt við samfélagið, hefðum við um átján milljörðum meira úr að spila en nú er,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. Framlag til Landspítalans sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkisins hefur lækkað úr 9,32 prósentum í 5,88 prósent á áratug. Hlutfallið hélst um og yfir níu prósent til ársins 2007. Þetta kemur fram í starfsemisupplýsingum spítalans fyrir árið 2009 þar sem framlag ríkisins til spítalans árin 1999 til 2010 er sundurgreint. Framlag ríkisins árið 2010 er rúmlega 32 milljarðar. „Þenslan í ríkisrekstrinum hefur ekki náð hingað. Talað er um að starfsmönnum ríkisins hafi fjölgað um fimmtán þúsund á síðustu árum en þeim hefur fækkað um 500 á LSH síðan spítalarnir voru sameinaðir árið 2000,“ segir Björn. Stjórnvöld þurfa að skera fimmtíu milljarða króna til viðbótar af ríkisútgjöldum til að halda ákvæði stöðugleikasáttmálans, að mati Samtaka iðnaðarins. Frekari skattahækkanir koma ekki til greina á næstu þremur árum samkvæmt samkomulaginu. Björn viðurkennir að niðurskurður af sömu stærðargráðu og á fjárlögum 2010, um 3,2 milljarðar króna, gæti þýtt fjöldauppsagnir á LSH eða að þjónusta sem nú þyki sjálfsögð verði aflögð. Eins þurfi að hafa hugfast að tækjabúnaður spítalans úreldist hratt og það sé fjárframlögum líknar- og félagasamtaka að þakka að spítalinn stendur ekki verr varðandi tækjakost en raun ber vitni. LSH notar þrisvar sinnum minna af sínu rekstrarfé til tækjakaupa en þau háskólasjúkrahús sem spítalinn ber sig saman við, eða um tvö prósent. „Við erum komin í gjaldþrot hvað varðar tækjakaup og erum algjörlega háð líknarfélögum hvað þetta varðar. Það er ekki eðlilegt og óþekkt annars staðar.“ Björn segir að líftími lækningatækja sé almennt talinn fimm til sex ár. Hér eru tæki nýtt í áratug eða lengur. „Við þurfum að neita okkur um að fá hingað nýjustu tækni. Það er nýlunda því LSH var vel tækjum búinn lengi vel.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Sjá meira