Rússar sigurvissir um Norðurskautsyfirráð Óli Tynes skrifar 22. september 2010 19:00
Þjóðir sem gera tilkall til Norðurskautslandsins eru nú á fundi í Moskvu til þess að reyna að komast að samkomulagi um hver skuli fá hvað. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þátt í fundinum. Rússland, Bandaríkin, Kanada, Danmörk og Noregur gera öll tilkall til stórra svæða. Rússar eru þar atkvæðamestir. Þeir heimta meira að segja Norðurpólinn sjálfan og eru þegar búnir að planta fána sínum á hafsbotninn undir pólnum. Rússar segjast vissir um að Sameinuðu þjóðirnar fallist á kröfur þeirra. Málið snýst um landgrunn þjóðanna Þarna er ekki um að ræða hefðbundna landhelgi heldur stendur deilan um það hversu mikið af Lomonosov fjallgarðinum sé framhald af landgrunni hverrar þjóðar fyrir sig. Lomonosov er neðansjávar fjallgarður sem liggur undir Norðurpólinn frá Rússlandi til Bandaríkjanna og Grænlands. Það eru engir smáræðis hagsmunir þarna í húfi því talið er að á þessu svæði sé að finna fjórðung af olíu- og gaslindum sem enn eru ófundar. Talað er um tíu milljarða tonna. Forsetarnir vilja samvinnu Bráðnun íss á Norðurskautinu er bæði að opna nýjar siglingaleiðir og opna aðgang að auðlindum á hafsbotni. Kapphlaupið um yfirráð harðnar því stöðugt. Ólafur Ragnar Grímsson átti síðar um daginn fund með Dmitry Medvedev forseta Rússlands. Þar var meðal annars rætt um að auka samvinnu Íslands og Rússlands með sérstöku tilliti til mikilvægis Norðurslóða á komandi árum.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira