Erlent

Bandaríkin vita ekki hvað stríð er

Óli Tynes skrifar
Mahmoud Ahmadinejad, forseti írans.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti írans. Mynd/AP

Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans segir að Bandaríkin hafi aldrei tekið þátt í alvöru stríði. Með þessu var forsetinn að vísa til þess hvað myndi gerast ef Bandaríkin réðust á Íran.

Ahmadinejad er nú í New York þar sem hann ávarpaði allsherjarþingið í gær. Í dag hélt hann fund með bandarískum blaðamönnum var þá meðal annars spurður hvernig Íran myndi bregðast við ef Ísrael gerði árás á kjarnorkuver landsins með stuðningi Bandaríkjanna.

Forsetinn svaraði: „Bandaríkin hafa aldrei tekið þátt í alvöru stríði. Hvorki í Vietnam né Afganistan. Ekki einusinni í síðari heimsstyrjöldinni. Ef stríð hefst verða því engin takmörk sett."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×