Steingrímur endurskoði vinnubrögð gagnvart þingflokki VG Heimir Már Pétursson skrifar 8. mars 2010 11:51 Lilja Mósesdóttir. Mynd/GVA
Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave áfellisdóm yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu. Formaður Vinstri grænna þurfi einnig að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokknum. Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna skrifar á Fésbók síðu sína í dag hvað það þýði eiginlega að þétta raðirnar til að stjórnin haldi velli og vísar þar til orða Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í gær, sem sagði stjórnarliða þurfa að þétta raðirnar. Og Lilja spyr á Fésbókinni hvort fólk sé að tala um skoðanaofbeldi gagnvart stjórnarliðum sem börðust gegn samþykkt Icesave samningsins? Ef svo sé muni þessi ríkisstjórn ekki sitja lengi. Í samtali við fréttastofu sagði Lilja að sumir dyggir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu sjálfsagt ekkert á móti því að hún þagnaði. En fyrir henni væru stjórnmál tímabundið verkefni. Hún hefði boðið sig fram með tiltekin mál á oddinum á sínum tíma, að samþykkja ekki Icesave samningana, að gripið yrði til aðgerða fyrir heimilin í landinu og að vera í andstöðu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þegar hún var spurð hvort efnahagsáætlun sjóðsins væri ekki hluti af efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar, sagði Lilja að gert væri ráð fyrir reglulegum endurskoðunum á áætlun sjóðsins og Íslendingar hlytu að endurskoða sinn þátt áætlunarinnar rétt eins og sjóðurinn endurskoðaði sinn þátt. Lilja segir að mistekist hafi að ná samstöðu innan stjórnarflokkanna um framgang Icesave málsins strax í byrjun síðasta árs. Þá hafi fimm þingmenn lagst gegn því í þingflokki Vinstri grænna að Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins og fjármálaráðherra færi og undirritaði samninginn. Hann hafi samt gert það. Hún sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina ekki hafa snúist um ríkisstjórnina almennt, en væri engu að síður áfellisdómur yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu. Þegar hún var spurð hvort Steingrímur þyrfti að endurskoða sína stöðu, sagði Lilja að hann þyrfti alla vega að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokki Vinstri grænna. Þingflokksfundir hefjast klukkan hálf tvö í dag og segist Lilja ætla að láta þessi sjónarmið koma fram á þingflokksfundi Vinstri grænna. Að loknum þingflokksfundum gefur forsætisráðherra Alþingi munnlega skýrslu um stöðu Icesave viðræðnanna.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira