Tíkin Flækja hitti fálka í Laugardalnum Erla Hlynsdóttir skrifar 5. nóvember 2010 15:23 Flækju fannst fálkinn spennandi leikfélagi.
Tíkin Flækja er aðeins sex mánaða gömul og fer daglega í göngutúr um Laugardalinn með eiganda sínum, Ásrúnu E. Magnúsdóttur. Þar hitta þær gjarnan hrafna og jafnvel gæsir en í gærmorgun blasti við þeim ný sjón þegar þær rákust á tignarlegan fálka með blóðuga bráð í klónum. „Krummunum finnst ógurlega gaman að stríða henni. Þeir lenda á jörðinni, hún hleypur og þegar hún nálgast fljúga þeir aftur af stað," segir Ásrún. Hún tók myndavél með í göngutúrinn í gær til að ná myndum af tíkinni litlu í fyrsta snjó vetrarins. Þegar þær komu auga á fugl ákvað Ásrún að sleppa Flækju lausri til að hún gæti leikið sér. „Ég hélt fyrst að þetta væri krummi en þegar hún hljóp af stað sá ég þetta gríðarlega vænghaf og sá að þetta var fálki sem flaug af stað með morgunmatinn sinn," segir Ásrún. Nokkuð af fiðri og blóði var í snjónum eftir átök fálkans við bráðina en Ásrún var ekki viss um hvers konar fugl hann hafði veitt. Hún er ættuð úr sveit og hefur áður séð fálka utan þéttbýlis en aldrei inni í borginni. Þar sem þær voru á göngu í nágrenni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardalnum hafði blaðamaður samband við starfsfólk þar sem kannaðist ekki við að nokkur fálki eða hænsn hafi sloppið út. Hins vegar sagði gamalreyndur starfsmaður að á veturna flygi fálki daglega yfir garðinn og helstu veiðilendur í Laugardalnum. Vel má því vera að þarna hafi verið sami fálki á ferð sem sannarlega hafði erindi sem erfiði þennan daginn.MYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. MagnúsdóttirMYND/Ásrún E. Magnúsdóttir
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Það koma bara færri“ Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Sjá meira