Nemendur HÍ bestir á lögmannsprófum 8. mars 2010 02:00 Deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands segir tölur um árangur í prófum fyrir réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður staðfesta að HÍ veiti bestan undirbúning fyrir lögmannsstörf. Forsetar annarra lagadeilda eru ósammála.Fréttablaðið/Rósa
Lögfræðingar frá lagadeild Háskóla Íslands skara fram úr lögfræðingum frá öðrum lagadeildum í prófum til að öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður. Að beiðni Bjargar Thorarensen, deildarforseta í lagadeild Háskóla Íslands, tók nefnd, sem annast umsjón með prófum til að öðlast málaflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum, saman upplýsingar um árangur þeirra sem tóku prófin árin 2005 til 2009. „Þetta staðfestir það sem við höfum sagt; að bæði fræðileg undirstaða og þjálfun sem veitt er hér í lagadeild Háskóla Íslands veiti bestan undirbúning til að að standast kröfur lögmannsprófsins og starfa sem lögmenn,“ segir Björg um niðurstöðurnar. Úr töflu sem prófnefndin tók saman má lesa árangur eftir því úr hvaða lagadeildum próftakarnir komu. Kemur þá í ljós að af 193 sem komu úr Háskóla Íslands náðu 137 eða 71,0 prósent prófunum í fyrstu tilraun. Af 45 lögfræðingum frá Háskólanum í Reykjavík náðu sextán, eða 26,3 prósent, prófunum í fyrstu tilraun. Frá Bifröst náðu fimm af nítján prófunum í fyrstu tilraun. Það svarar til 26,3 prósenta. Frá Háskólanum á Akureyri náði enginn af aðeins fjórum sem sátu námskeiðin prófunum í fyrstu atrennu. Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar á Bifröst, segir fjölda einstaklinga þaðan í gögnum prófnefndarinnar svo lítinn að samburður sé ómarktækur. „Þetta eru of fáir einstaklingar til að hægt sé að draga ályktanir um námið hjá okkur sem slíkt. Ef samanburðurinn hefði verið árið 2006 þá hefði Bifröst verið í toppsætinu,“ segir Bryndís og vísar til þess að árið 2006 náðu báðir lögfræðingarnir frá Bifröst sem þreyttu prófin að standast þau og árangurinn þar með 100 prósent. Þórður S. Gunnarsson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, hafnar því algjörlega að gæði námsins þar séu síðri en í Háskóla Íslands. Tölur prófnefndarinnar endurspegli aðallega gæði námskeiðsins sem í boði sé. „Það er skoðun okkar að þetta námskeið sé fyrst og fremst framlenging á Háskóla Íslands og hafi verið það í gegnum tíðina. Við höfum ekki átt þess kost að fara yfir þessar upplýsingar en ef þær reynast réttar þá kallar það auðvitað á endurskoðun á námskeiðinu. Upplýsingar sýna að nemendur frá einni lagadeild virðast af einhverri ástæðu fá betri árangur út úr þessu og það verður ekki rakið til námsgetu,“ segir Þórður S. Gunnarsson. gar@frettabladid.is Bryndís Hlöðversdóttir Þórður S. Gunnarsson Björg Thorarensen
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Fleiri fréttir Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Hvernig munu dýr bregðast við myrkvanum þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Sjá meira