Erlendar listakonur hópast á Skagaströnd 8. mars 2010 19:08
Mannlífið á Skagaströnd hefur tekið stakkaskiptum eftir að útlendar listakonur tóku að hópast þangað tugum saman til langdvalar. Líf og fjör hefur færst í Kántríbæ. Það er ótrúlegt en satt en á Skagaströnd, sem byggðist upp á sjávarútvegi, finnst ekki lengur nein fiskvinnsla. Vinnsluhúsin standa eftir tóm. Eða hvað? Þegar betur er að gáð, þá er búið að breyta einu þeirra í alþjóðlega listamiðstöð. Þar sem áður var flakaður fiskur eru nú listamenn úr öllum heimshornum að störfum, að jafnaði tíu talsins hverju sinni, mánuð í senn. Landið trekkir að og þykir listamönnunum það bjóða upp á skapandi umhverfi fyrir listina. Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarkona átti hugmyndina, Byggðastofnun lagði til húsið og sveitarfélagið lagði í púkkið. Frá því starfsemin hófst fyrir nærri tveimur árum hafa 170 manns komið, og aldeilis kryddað mannlífið. Ólafía Lárusdóttir, verkefnisstjórni Nes listamiðstöðvar, segir að listafólkið versli í búðinni, það fari í Kántríbæ,- það séu allskyns uppákomur og þau séu dugleg að mæta til dæmis á þorrablótin. Þetta skili sér í auðugra mannlífi og hafi lífgað mjög upp á sveitarfélagið. Orðspor listamiðstöðvarinnar berst út meðal listamanna um heiminn og afskekkt pláss undir heimskautsbaug um hávetur hræðir þá ekki frá því að koma. Listamennirnir búa í nokkrum íbúðum í bænum og greiða um 100 þúsund krónur fyrir aðstöðuna. Við tökum eftir því að þetta eru aðallega stúlkur sem mæta. Ólafía segir að þær séu í miklum meirihluta og veltir því upp hvort þær séu ævintýragjarnari en strákarnir. Það þurfi ef til vill að fara að hvetja stráka til að sækja um.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Sjá meira