Fórnarlömbum nauðgana meinaður aðgangur að réttlæti 8. mars 2010 13:54
Fórnarlömbum nauðgana og annars kynferðisofbeldis er um allan heim meinaður aðgangur að réttlæti vegna kynbundins mismununar og hugmynda um kynhegðun fórnarlamba nauðgana. Þetta kemur fram í skýrslum sem samtökin Amnesty International birtu í dag. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna birtir Amnesty International tvær skýrslur sem skoða kynferðislegt ofbeldi annars vegar í Kambódíu (Breaking the silence: Sexual violence in Cambodia) og hins vegar í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð (Case Closed: Rape and Human Rights in the Nordic Countries). Í tilkynningu frá Amnesty segir að staðan í fátækum og ríkum löndum sé svipuð, konur sem er nauðgað eða eru misnotaðar hafa litla möguleika á að sjá árásarmennina leidda fyrir dómstóla. Átakanlegt „Það er átakanlegt að á 21. öldinni, í ljósi allrar þeirrar löggjafar sem ætlað er að tryggja jafnrétti kvenna, nær nánast ekkert ríki að vernda konur eða tryggja að nauðgarar séu sóttir til saka fyrir glæpi sína," segir ennfremur. „Skýrslur Amnesty International sýna að fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar og heimilisofbeldis sem reyna að leita réttlætis mæta margs konar hindrunum. Meðal þeirra eru ófullnægjandi, neikvæð eða vanvirðandi viðbrögð lögreglu og starfsfólks heilbrigðis- og dómskerfis." Þá er bent á að vegna langvarandi afskiptaleysis yfirvalda veigri margar konur sér við að tilkynna þessa glæpi til lögreglunnar, skammast sín eða kenna sér um. „Í þeim tilfellum þar sem konur leita til lögreglu og leggja fram kæru ná kröfur þeirra um skaðabætur og réttlæti sjaldnast fram að ganga. Í báðum skýrslunum kemur fram að ákærur vegna nauðgana eru mjög sjaldgæfar í samanburði við önnur brot. Kynferðislegt ofbeldi er einfaldlega ekki tekið alvarlega ef ekki er líka um gróft líkamlegt ofbeldi að ræða. Kona sem hefur verið nauðgað og ber ekki sjáanleg líkamleg merki er oft gerð ábyrg fyrir glæpnum en nauðgarinn kemst undan án þess að sæta nokkrum viðurlögum, hvorki félagslegum né lagalegum." Ólík dómskerfi en öll gölluð Dómskerfin sem skoðuð eru í skýrslunum eru ólík. Amnesty International kemst að því að í þeim öllum eru eyður og misræmi sem hindra konur og stúlkur í því að leita réttlætis vegna kynferðisglæpa. „Á Norðurlöndunum, til dæmis, er það ofbeldi eða hótanir um ofbeldi sem ákvarða alvarleika nauðgana en ekki hvort verið er að brjóta gegn kynferðislegu sjálfræði konu. Í skýrslunni „Case Closed" er m.a. fjallað um mál í Finnlandi þar sem maður neyddi konu til að hafa samfarir á salerni á bílastæði. Hann lamdi höfði hennar við vegg og þrýsti handlegg hennar á bak aftur. Í mati saksóknara var þetta ekki nauðgun þar sem ofbeldið, sem beitt var, var samkvæmt mati saksóknara lítilsháttar. Maðurinn var dæmdur fyrir þvinguð kynmök og dæmdur til sjö mánaða skilorðsbundins fangelsis. Til samanburðar er hægt að taka dæmi um refsingar fyrir að neita herþjónustu eða borgaralegri þjónustu. Í Finnlandi liggur við slíkri neitun að minnsta kosti sex mánaða fangelsi." Þá segir að í Kambódíu treysta konur ekki réttarkerfinu. „Kostnaður sem tengist kæruferlinu aftrar þeim. Fórnarlömb eru oft beðin um að greiða mútur til að lögreglan hefji yfirhöfuð rannsókn. Peninga er einnig krafist vegna ýmissa útgjalda lögreglu við rannsóknina. Í skýrslunni „Breaking the Silence" er greint frá því hvernig samið er utan dómstóla um greiðslur. Lögreglumenn eru milligöngumenn milli fjölskyldna fórnarlambsins og gerandans. Þrýst er á fórnarlambið að falla frá kæru gegn greiðslu sem lögreglan tekur síðan hluta af. Reynsla of margra kvenna af réttarkerfinu eykur á ofbeldisupplifunina. Sérhver gerandi sem kemst upp með þessa glæpi án þess að svara til saka er áminning um skeytingarleysi stjórnvalda um aðstæður fórnarlamba kynferðisofbeldis." Aðgangur að réttlæti verði tryggður Að lokum segir Amnesty að ofbeldi gegn konum sé langvarandi og veruleg hindrun á jafnrétti. „Amnesty International hvetur öll stjórnvöld til að grípa til raunhæfra aðgerða til að koma í veg fyrir rannsaka og refsa fyrir kynbundið ofbeldi. Mikilvægast er að tryggja konum sem sæta ofbeldi aðgang að réttlæti vegna þess skaða sem þær hafa orðið fyrir. Amnesty International hvetur auk þess allar ríkisstjórnir til að lýsa yfir fullum stuðningi við mannréttindi kvenna sem eru skráð í fjölmörgum mannréttinda samningum og í Peking-yfirlýsingunni."
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sjá meira