Þingmenn VG vilja AGS út Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. mars 2010 18:45
Nokkrir þingmenn vinstri grænna íhuga að styðja þingsályktunartillögu Framsóknar og Hreyfingarinnar um að samstarfi við AGS verði slitið. A.m.k þrír þingmenn Vinstri grænna vilja endurskoða samstarfið. Fyrrverandi ráðherra vill slíta því. Framsóknarflokkurinn og Hreyfingin lögðu sameiginlega fram þingsályktunartillögu í liðinni viku um að samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn yrði slitið. Rætt var um málið í eina klukkustund og enginn stjórnarþingmenn tóku þátt í því. Stuðningur við málið er þó til staðar innan þingflokks Vinstri grænna. „Ég hef ekkert farið leynt með þá skoðun mína að það beri að endurskoða efnahagsáætlun AGS og ekki síst núna eftir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafnaði Icesave-samkomulaginu sem stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur þrýst mjög á að við samþykkjum," segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis. Annar talsmaður þess að samstarfið við AGS verði endurskoðað er Ögmundur Jónasson. Ögmundur sem staddur er í Noregi sagðist í samtali við fréttastofu vera sammála markmiðum tillögu Framsóknar og Hreyfingarinnar og sagði orðrétt: „Ég er sammála markmiðum tillögunnar og hef löngum lagt áherslu á að mikilvægt sé að við losnum við AGS úr landi. Ég mun vinna að því innan stjórnarmeirihlutans að ná þessum markmiðum fram." Aðrir þingmenn sem hafa verið sagðir reiðubúnir að endurskoða samstarfið við AGS eru Atli Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Ásmundur Einar sagðist í samtali við fréttastofu hafa miklar efasemdir um samstarfið við AGS. Hann sagðist jákvæður gagnvart þingsályktunartillögu Framsóknar og Hreyfingarinnar. Ekki náðist í þau Guðfríði Lilju og Atla þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira