Innlent

Nefbraut mann á Örkinni

MYND/PJETUR
MYND/PJETUR
Lögreglan á Selfossi handtók í nótt karlmann á fimmtugsaldri sem veist hafði að öðrum manni á Hótel Örk rétt fyrir klukkan þrjú. Lét hann höggin dynja á fórnarlambinu sem nefbrotnaði auk þess sem hann missti nokkrar tennur. Maðurinn gisti fangageymslur í nótt og hefur ekki enn verið yfirheyrður.

Þá var nokkur erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Nokkur ölvun var í miðbænum og nokkrir ósáttir þar innan um. Lögreglan fór í fjölmörg útköll en ekkert stórvægilegt kom uppá.

Tíðindalaust var hjá lögreglunni á Suðurnesjum og á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×