Óánægja með endurkomu hverfisskóla 19. febrúar 2010 03:45 Nýjar leiðir eftir niðurfellingu samræmdu prófanna Framhaldsskólar miðuðu lengi vel við niðurstöður samræmdra prófa er þeir tóku nemendur inn í skólann. Þau hafa verið lögð niður og er þess í stað tekið tillit til einkunna úr grunnskóla og búsetu samkvæmt nýjum reglum. Fréttablaðið/GVA
Nýjar innritunarreglur í framhaldsskóla búa til fleiri vandamál en þær leysa, segir Ingi Ólafsson, skólastjóri í Verslunarskóla Íslands, sem í fyrsta sinn í sögu skólans verður að hverfisskóla. Skiptar skoðanir eru hjá skólastjórum framhaldsskóla um reglurnar sem fela í sér að að minnsta kosti 45 prósent nýnema eigi að koma úr skólum í grenndinni. Ingi segir grunnskólanema setta í átthagafjötra með reglunum. Már Vilhjálmsson, skólastjóri Menntaskólans við Sund, segir reglurnar í mótsögn við lög um framhaldsskóla. Þau hvetji til sérstöðu skóla en reglur um hverfisskóla dragi úr valmöguleika nemenda til að velja sér skóla við hæfi. Ingibjörg S, Guðmundsdóttir, skólastjóri Kvennaskólans, tekur undir þessi sjónarmið, reglurnar muni heldur ekki leysa öll vandamál er snúa að innritun nýnema í framhaldsskóla, heldur færa vandann til. Lársus H. Bjarnason, skólastjóri Menntaskólans við Hamrahlíð, segir lítið hægt að segja um innritunarreglurnar fyrr en á þær hafi reynt. Hann hafi þó á tilfinningunni að þær breyti ekki miklu fyrir skólann, MH hafi ætíð tekið hærra hlutfall úr nágrenninu en ýmsir aðrir skólar, búseta hafi verið sjónarmið sem tekið hafi verið tillit til. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti, býst ekki við að reglurnar breyti miklu fyrir FB. Framhaldsskólum ber að setja inngönguskilyrði fyrir nýnema í samráði við menntamálaráðuneytið. Þær upplýsingar fengust þar að framhaldsskólar eigi að hafa þær tilbúnar um næstu mánaðamót. Innritun í framhaldsskóla gekk brösuglega síðastliðið vor eins og greint var frá í fréttum. Ingibjörg segir vandræðin ekki hafa skapast út af því að samræmdu prófin voru aflögð heldur vegna þess hve mikill nemendafjöldi sótti um framhaldsskólavist, mjög lítill sveigjanleiki sé í kerfinu vegna þess að plássin fyrir nemendur séu ekki nægilega mörg. Már er sama sinnis og segir vandamál vera að trassað hafi verið í mörg ár að byggja nýjan framhaldsskóla í Reykjavík. Það hafi haft þær afleiðingar að skólabekkirnir séu afar þétt setnir og val nemenda af skornum skammti. Þeir hafi í raun ekki val um framhaldsskóla fyrr en námsframboð verði aukið, framboð af skólaplássum verði meira en eftirspurn. Þess má geta að nemendum ber að sækja um framhaldsskóla í byrjun apríl og kemur þá í ljós hvert straumurinn liggur. Engar einkunnir fylgja þeirri umsókn en þær eru svo sendar á framhaldsskólana að grunnskólaprófum loknum. Nemendur geta sótt um hvaða skóla sem er, en hafa forgang í hverfisskólum. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira