Má setja skilyrði fyrir veitingu smálána 19. febrúar 2010 04:00 Skyndilán Hægt er að taka allt að 40 þúsund króna lán með því að senda SMS-skilaboð hjá eina fyrirtækinu sem býður upp á smálán hér á landi.
Full ástæða er til að nýta heimild í nýjum lögum um neytendalán til að setja skilyrði fyrir veitingu smálána, að mati Neytendastofu. Slík skilyrði myndu meðal annars skylda veitendur svokallaðra SMS-lána til að gera lántakendum gleggri grein fyrir kostnaði við lántökuna. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið undirbýr nú frumvarp sem innleiða á nýja tilskipun Evrópusambandsins um neytendalán. Þar er meðal annars að finna heimild til að setja sérstök lán undir 200 evrum, 35 þúsund krónum, sem hingað til hafa verið undanskilin lögum um neytendalán, segir Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu. Starfsmenn Neytendastofu hafa þegar verið í sambandi við efnahags- og viðskiptaráðuneytið vegna þessa, en endanleg ákvörðun verður tekin þar. Verði smálánin felld undir hefðbundin ákvæði laga um neytendalán þurfa forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem þau veita að gefa viðskiptavinum mun ýtarlegri upplýsingar en nú er gert, segir Tryggvi. Til dæmis þurfi að upplýsa hver kostnaðurinn við lántökuna er á ársgrundvelli með svokallaðri árlegri hlutfallstölu kostnaðar við lánið. Slíka hlutfallstölu þurfa önnur fyrirtæki sem veita lán alltaf að upplýsa sína lántakendur um í dag, segir Tryggvi. „Þetta mun auka vernd neytenda, en á endanum er valið þeirra," segir Tryggvi. Kjósi neytandinn að taka lán á okurvöxtum sé það ákvörðun hans. Tryggvi segir það á verksviði efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að ákveða hvort sett verði sérstök lög um að starfsemi smálánafyrirtækja verði gerð starfsleyfisskyld. Í dag þurfa fyrirtæki sem veita smálán ekki að fá starfsleyfi þrátt fyrir að standa í lánastarfsemi. Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að slík fyrirtæki teljist ekki fjármálafyrirtæki þar sem þau fjármagni útlán sín ekki með innlánum. Því þurfi þau ekki að sækja um leyfi til lánastarfsemi til eftirlitsins. Í dag býður eitt fyrirtæki upp á svokölluð SMS-lán, en heimildir Fréttablaðsins herma að fleiri íhugi nú að fara út í slíka lánastarfsemi. Til að taka slík lán þarf að skrá sig á vefsíðu fyrirtækisins, og senda svo SMS til að fá skyndilán allt að 40 þúsund krónum í fimmtán daga. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fleiri fréttir Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Sjá meira