Skuldastaða ríkisins ekki slæm í alþjóðlegum samanburði Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. október 2010 12:15 Steingrímur J. Sigfússon, kynnti fjárlög næsta árs fyrir blaða- og fréttamönnum í Þjóðminjasafninu á föstudaginn. Mynd/ÞÞ
Skuldir ríkisins eru ekki jafn háar í alþjóðlegum samanburði og margir halda. Ef áætlun stjórnvalda og AGS gengur eftir verða skuldir ríkisins svipaðar og í nágrannaríkjum okkar og lægri en í bæði Bretlandi og Írlandi. Þá er atvinnuleysi hér það sama og í OECD-ríkjum. Mark Flanagan fráfarandi yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi léði sérstaklega máls á því í samtali við fréttastofu í vikunni að ef markmið núverandi ríkisstjórnar næðust um hallalausan rekstur ríkissjóðs á árinu 2012, sem allar líkur væru á að yrði raunin, þá væri það magnaður árangur í ljósi þess að hér varð algjört kerfishrun haustið 2008. Skuldir ríkisins hafa aukist gríðarlega eftir bankahrunið, en útlitið er ekki jafn dökkt í alþjóðlegum samanburði og margir halda. Ef fram heldur sem horfir og endurreisnaráætlun stjórnvalda og AGS gengur eftir verða opinberar skuldir Íslands ekki verulega hærri en í flestum nágrannaríkjum okkar innan örfárra ára. Í kynningu fjármálaráðuneytisins á fjárlögum næsta árs kemur fram að opinberar heildarskuldir Íslands í lok árs 2009, þ.e bæði ríkisins og sveitarfélaga, séu áætlaðar 88 prósent af landsframleiðslu, sem er töluvert umfram opinberar skuldir hinna Norðurlandanna. Opinberar skuldir Írlands og Bretlands hafi einnig verið lægri, en þær eru þó taldar hækka í tæp 100 prósent af landsframleiðslu í lok næsta árs. Þá er hrein skuld hins opinbera á Íslandi verulega lægri, eða um 60 prósent af landsframleiðslu, sem er svipað og jafnvel lægra en hjá mörgum vestrænum ríkjum. Hrein skuld hins opinbera sé að mörgu leyti betri mælikvarði á skuldastöðu þjóðarbúsins að mati embættismanna fjármálaráðuneytisins, þar sem þá sé ekki aðeins litið á skuldahlið hins opinbera heldur dregnar frá útistandandi lán og kröfur. Annar mælikvarði á stöðuna er atvinnuleysi, en það var 8,7 prósent á öðrum ársfjórðungi. Atvinnuleysi í OECD-ríkjunum er að meðaltali á svipuðu róli og það er hér á landi eða á bilinu 8-9 prósent.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira