Innlent

Prófessor strunsaði út úr viðtali á Útvarpi Sögu

Arnþrúður Karlsdóttir var vígreif í viðtali við Þórólf.
Arnþrúður Karlsdóttir var vígreif í viðtali við Þórólf.

„Ég var sko ekkert dónaleg við hann," segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, en hagfræðiprófessorinn Þórólfur Matthíasson gekk út úr viðtali hjá henni í morgun eftir að hún krafði hann svara varðandi Icesave.

Hún segist hafa beðið hann um að færa rök fyrir því að 90 prósent eigna Landsbankans fengjust upp í Icesave-skuldina og hann taldi sig hafa svarað spurningunni. Arnþrúður var ekki sátt við svarið og þótti hann ekki færa sannfærandi rök fyrir því að svo mikið fengist fyrir eignir bankans.

„Þannig ég gekk á hann. Mér hefur fundist hann sleppa gagnrýnislaust í gegnum viðtölin sín á RÚV," segir Arnþrúður sem bað Þórólf um útreikninga sem sýndu fram á það að eignir Landsbankans næðu upp í svo stóran hluta Icesave-kröfunnar. Þórólfur benti henni á að skilanefnd Landsbankans héldi þessu sjálf fram og spurði hana á móti hvort hún teldi skilanefndina vera að ljúga.

Arnþrúður sagði þá að annað eins hefði gerst og því færi hún varlega í að trúa slíkum nefndum. Svo hófst nokkurt orðaskak.

„Og þá gekk hann bara út," segir Arnþrúður en Þórólfur sagði ekkert á leiðinni úr viðtalinu sem var í beinni útsendingu. Sjálf kvaddi hún hann með orðunum: „Vertu þá bara margblessaður."

Arnþrúður hefur unnið lengi í fjölmiðlum en þetta er í fyrsta skiptið sem einhver gengur út frá henni í miðju viðtali í beinni útsendingu.

Þess má geta að viðtalið verður endurflutt á útvarpi Sögu á bylgjulengdinni 99.4 klukkan 14:00 í dag. Ekki er hægt að hlusta á hljóðupptökur af því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×