Kergja vegna frímiða útvalinna í sólarferð 23. júlí 2010 06:30 Verð á útskriftarferð nemenda hefur nærri tvöfaldast frá því í fyrra.
Fimmtíu nemendur við Menntaskólann á Akureyri rituðu nafn sitt á undirskriftalista til að mótmæla því að útvaldir nemendur við skólann fái útskriftarferð sína og uppihald þar ókeypis. Auk nemendanna fá tveir kennarar og makar þeirra frítt í ferðina. Flestir nemendur þriðja bekkjar Menntaskólans á Akureyri (MA) þurfa að borga tæpar 200 þúsund krónur fyrir ferðina, sem farin verður til Tyrklands í haust. Átta fá ókeypis í ferðina, en þeir eru annars vegar í bekkjarráði, sem skipuleggur ferðina og stundar fjáröflunarstarfsemi, og hins vegar gjaldkeri í sjoppu skólans. Þá fá þeir sem eru í svokölluðu sjoppuráði helming ferðarinnar borgaðan. Alls fara 172 nemendur í ferðina. Allt er innifalið í ferðapakkanum; rúta, flug, matur, drykkur og gisting á hóteli. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkt er gert, en útskriftarferð MA í fyrra kostaði nemendur í kringum 100 þúsund. Hefð er fyrir því að þriðja bekkjarráð skólans fái ferðirnar ókeypis en hingað til hafa allir nemendur borgað uppihald sjálfir. Helga Sigfúsdóttir, nemi í þriðja bekk, hóf undirskriftarsöfnun til að mótmæla því að óbreyttir nemendur þyrftu að greiða tæpar 2,2 milljónir króna, eða í kringum 14.000 krónur hver, undir aðra. Helga safnaði um 50 undirskriftum, en á listanum stóð: „Mótmælum að þriðjabekkjarráð fái frítt í útskriftarferðina. Í ár er allt innifalið og við erum því að borga fæði fyrir þau, sem ætti ekki að viðgangast.“ Tveir kennarar og makar þeirra fara í ferðina sem fararstjórar. Erfiðlega gekk að fá kennara til að fara í ferðina og kom þá upp sú hugmynd að þeir fengju að taka maka sína með. Þeir fá flug, uppihald og gistingu greitt að fullu frá ferðaskrifstofunni og dagpeninga frá nemendum. Jón Már Héðinsson skólameistari sagðist ekki vel upplýstur um málið, en sagði fjölda fararstjóra byggja á gamalli reglu. „Þetta er ströng vinnuferð en ekki skemmtiferð fyrir þá sem fara sem fararstjórar. Það þarf ekkert endilega að vera kennari skólans,“ segir hann. Eftir undirskriftarsöfnunina og fundi var sú málamiðlun gerð að þeir nemendur sem skipulögðu ferðina og unnu sem gjaldkerar sjoppunnar, skyldu borga helminginn af sínu fæði sjálfir. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Sjá meira