Innlent

Þjófur komst undan lögreglu á stolnu torfæruhjóli

Þjófar brutust inn í verslun N-eins í Höfðahverfi í Reykjavík í nótt.

Þjófavarnakerfi fór í gang en áður en lögregla kom á vettvang hafði öðrum þjófnum tekist að komast undan á nýju torfæruhjóli, sem hann stal í versluninni, en lögreglumenn hlupu hinn uppi.

Verið er að yfirheyra hann og leita að hinum og hjólinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×