Erlent

Stefnir í fimm daga verkfall hjá British Airways

Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum á milli samningsaðila yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins. Allt stefnir því í að boðað fimm daga verkfall flugliða hefjist á miðnætti.

Starfsmennirnir hafa undanfarna mánuði átt í hörðum deilum við stjórnendur flugfélagsins og gagnrýnt harðlega niðurskurðaráætlanir þeirra. Willie Walsh, forstjóri British Airways, segir verkalýðsforkólfa vera fasta í tímaskekkju og að þeir skeyti ekkert um venjulegt fólk. Flugfélagið muni bregðast við aðgerðum starfsfólksins leggi það niður störf. Hann fullyrðir að verkfallið muni ekki hafa áhrif á ferðalög viðskiptavina British Airways.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×