Lífið

Vonast eftir 15 þúsundum

þrír góðhjartaðir Dagur Kári, leikstjóri The Good Heart, ásamt framleiðendunum Þór Snæ Sigurjónssyni og Skúla Malmquist.fréttablaðið/stefán
þrír góðhjartaðir Dagur Kári, leikstjóri The Good Heart, ásamt framleiðendunum Þór Snæ Sigurjónssyni og Skúla Malmquist.fréttablaðið/stefán

Um tvö þúsund manns hafa séð kvikmyndina The Good Heart, eftir Dag Kára Pétursson, hérlendis síðan hún var frumsýnd 5. mars. Aðsókn um nýliðna helgi er ekki inni í þessum tölum.

Þórir Snær Sigurjónsson, annar framleiðendanna, vonast eftir því að 10 til 15 þúsund áhorfendur muni á endanum sjá myndina. „Það er raunhæft markmið en aðalatriðið var að fá dreifingu í Bandaríkjunum sem við fengum. Við förum í 22 borgir og á VOD og í bíó 30. apríl,“ segir Þórir Snær. Myndin hefur einnig verið seld til um það bil 25 landa, m.a. Frakklands, þar sem hún verður frumsýnd í fjörutíu sýningarsölum í næstu viku.

Aðspurður segir Þórir að þessi góða dreifing dugi þó ekki enn til að ná upp í kostnað myndarinnar. „Upphæðirnar eru aðeins lægri en þær voru fyrir einu til tveimur árum þegar við gerðum myndina,“ segir hann um peningana sem fást fyrir dreifinguna. „En við gerum okkur vonir um að ná endum saman. Hrunið fór líka illa með okkur í erlendum kostnaði. Þetta er ekki alveg komið en við gerum okkur vonir um að ná þessu saman.“

Hann tekur fram að heimamarkaðurinn sé mjög mikilvægur enda verður haldið áfram á fullu að markaðssetja myndina á Íslandi. „Orðsporið sem er komið frá þessum tvö þúsund manns er vonandi farið að breiðast út og viðbrögðin eru nokkuð jákvæð.“

Hann segir tvö þúsund áhorfendur fyrstu vikuna engin vonbrigði. „Þetta eru ekki ósvipaðar tölur og Nói [Albinói] var í á sínum tíma og hún endaði í tuttugu þúsundum. Ég held að hún taki þetta með tímanum. Ég held líka að þetta sé mynd fyrir alla.“

Um fimm þúsund manns sáu síðustu mynd Dags Kára, Voksne Mennesker, hér heima, töluvert færri en búist var við. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.