Ætla að halda Gauraflokk í fjórða sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. janúar 2010 08:30 Gamli skálinn í Vatnaskógi.
KFUM ætlar að halda sumarbúðir í sumar fyrir 10-12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Ef fer sem horfir, verður þetta í fjórða sinn sem hópurinn er haldinn. Alltaf fullt í Gauraflokki Verkefnið hefur verið kallað Gauraflokkur, en markmiðið með honum er að bjóða þennan hóp drengja velkominn í sumarbúðir í Vatnaskógi þar sem þörfum þeirra er mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt, eins og segir á vefsíðu KFUM. „Það er alltaf fullt hjá okkur og mikil ánægja með þetta á meðal foreldra. Við höfum kannað það, við höfum haft samband við foreldra eftirá og fengið almennt mjög jákvætt viðhorf," segir Ársæll Aðalbergsson, forstöðumaður í Vatnaskógi. Raunar hefur tekist svo vel til að nú stendur til að setja á laggirnar hóp fyrir stúlkur líka. „Þá ætlum við að nota aðrar sumarbúðir sem við starfrækjum sem heitir Kaldársel," segir Ársæll. Reynt að halda kostnaði í lágmarki fyrir foreldra Kostnaðurinn við að halda Gauraflokkinn er umtalsvert meiri en sá kostnaður sem fer í að taka á móti öðrum hópum í Vatnaskógi. Við erum með meiri mönnun, færri drengi og sérhæft starfsfólk," segir Ársæll. Til að kostnaður, umfram það sem hefðbundin sumarbúðadvöl kostar, falli ekki á foreldra drengja í Gauraflokknum hafa Skógarmenn því hingað til leitað eftir stuðningi frá utanaðkomandi aðilum til þess að fjármagna verkefnið. Ársæll segir að til standi að leita til Reykjavíkurborgar sem geti ef til vill fjármagnað verkefnið með aðstoð félags- og tryggingamálaráðuneytisins. „Við erum í viðræðum við Reykjavíkurborg um að þeir komi að þessu," segir Ársæll. Verkefnið vekur athygli Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi bendir á það á heimasíðu sinni að ríkisstjórnin og sveitarfélög séu í samstarfsverkefni með sjóð sem fjármagnaður sé af ríkinu og sé ætlað að auka stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn sem greind hafa verið með ofvirkni og athyglisbrest. Hún segir að Gauraflokkurinn hafi vakið athygli sína þegar að hún heimsótti KFUM og -K fyrir áramót og hún hyggist styðja samtökin í að sækja í þennan sjóð núna til að verkefnið geti haldið áfram.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Fleiri fréttir „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Sjá meira