Ósamræmi í yfirlýsingum norrænna ráðamanna 17. janúar 2010 13:00
Ósamræmis gætir í yfirlýsingum norrænna ráðamanna um hvort áfram verði staðið við lánafyrirgreiðslur til Íslands. Endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsin á efnahagsáætlun Íslands tefst ef norrænu ríkin fresta afgreiðslu lána. Norrænu lánin eru tengd endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlunar Íslands. Lánin eiga að greiðast út í fjórum jöfnum greiðslum við hverja endurskoðun og var fyrsti hlutinn greiddur út á síðasta ári. Norrænu ríkin hafa skilyrt sínar lánafyrirgreiðslur við lyktir Icesave málsins og ef lánin frestast þá frestast ennfremur endurskoðun sjóðsins. Fjármálaráðherra Noregs, sagði aðeins nokkrum klukkustundum eftir að forseti Íslands synjaði Icesave lögunum staðfestingar að ekki kæmi til greina að afgreiða frekari lán Íslands. Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, sagði hins vegar daginn eftir að Norðmenn ætluðu sér ekki að loka á lánalínur til Íslands.Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.Mynd/Anton BrinkFredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði hins vegar í viðtali við Reuters fréttastofuna á fimmtudag að ekki kæmi til greina að lána Íslendingum nema Ísland standi við sínar alþjóðlegu skuldbindingar. Í sama streng tók Anders Borg, fjármálaráðherra Svía. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fundaði með fjármálaráðherrum Danmerkur og Noregs fyrr í þessum mánuði eftir að ákvörðun forseta lá fyrir. Skilyrði norrænu ríkjanna fyrir lánafyrirgreiðslum hefur sett mikinn þrýsting á íslensk stjórnvöld í Icesave málinu. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, líkir þannig Svíum við handrukkara í pistli sem birtist á heimasíðu hans í vikunni sem leið. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, telur ennfremur víst að afstaða norrænu ríkjanna muni leiða til þess að næstu endurskoðun sjóðsins verða frestað um óákveðinn tíma.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira