Innlent

Steingrímur styður Gylfa

Mynd/Arnþór Birkisson

„Ég sé ekki að það liggi fyrir neitt annað en að hann hafi svarað samkvæmt því sem hann best vissi á þessum tíma. Ég hef ekkert í höndum sem fær sannað að þarna hafi ásetningi eða vísvitandi verið hallað réttu máli. Ég hef það ekki. Á meðan nýtur Gylfi Magnússon vafans af minni hálfu," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiparáðherra, hefur legið undir miklu ámæli eftir að upplýst var að lögfræðiálit frá lögmannsstofu um gengistryggð lán hafi verið sent úr Seðlabanka Íslands í viðskiptaráðuneytið fyrir ári síðan.

Steingrímur og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, funduðu með Gylfa í gærkvöldi vegna málsins. Steingrímur segir að fundurinn hafi verið ágætur og þar hafi Gylfa fengið tækifæri til á að fara yfir orðaskiptin í þinginu í júlí í fyrra og hvernig farið var með lögfræðiálitið innan ráðuneytisins.

Þór Saari nokkuð kaldur

Steingrímur segir að óneitanlega sé um óheppilegt mál að ræða sem auðvelt sé að gera tortryggilegt. „Enda ekki til sparað að hálfu ýmissa aðila. Mér finnast menn eins og Þór Saari nokkuð kaldir sem bera á hann lygar án þess að rökstyðja það með nokkrum hætti," segir Steingrímur. Hann tekur undir með Gylfa segir að æskilegt hefði verið að hugtakanotkun í umræðunum í þinginu hefðu verið skýri að hálfu Gylfa og þingmanna.

Óþarfi að þing komi saman

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við fréttastofu á fimmtudag að málið væri það alvarlegt að kalla bæri Alþingi saman hið fyrsta til að fara yfir það. Steingrímur deilir ekki þeirri skoðun með Bjarna og bendir á að þingnefndir hefji störf innan skamms og á þeim vettvangi sé hægt að ræða málið. Að hans mati er óþarfi að umbylta vinnuáætlun Alþingis. „Þetta hlýtur að þola bið fram í byrjun september," segir Steingrímur.




Tengdar fréttir

Segir Gylfa hafa logið

„Þetta eru ekki nægjanlegar skýringar og við sjáum okkur ekki annað fært en að bera fram vantrauststillögu á Gylfa. Þegar farið er yfir það hvað hann sagði og hvenær þá sést að hann var ekki að segja satt,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.

Engin leynd yfir tölvupósti

Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis.

Gylfi: Skil ekki eftir naglaför í parketinu

„Auðvitað hef ég velt því fyrir mér,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, aðspurður hvort hann hafi íhugað að segja sér embætti. Hann segir að það verði ekki erfitt að koma honum út þegar ákvörðun um það verði tekinn. Hann muni ekki skilja eftir naglaför í parketinu. Þetta kom fram í máli Gylfi í þættinum Vikulokin á Rás 1 í dag.

Ræddu gagnrýni á Gylfa

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst

Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð

Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér.

Stjórnmálafræðingur: Gylfi vandræðalega tvísaga

Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur segir, stöðu Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vera erfiða. Ráðherrann virðist vera „vandræðalega tvísaga", þótt auðvitað megi líta til aðstæðna á þeim tíma, sumarið 2009, til skýringar á athöfnum hans, en þá var meðal annars verið að fjalla um uppgjör gömlu bankanna.

Gylfi Magnússon: Afsögn ekki rædd

„Það er ekki minn skilningur heldur þvert á móti að starfsmenn ráðuneytisins hafi haldið frá mér upplýsingum eða blekkt mig. Ég var fyllilega upplýstur um það sem átti að upplýsa mig um," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem ræddi við Fréttablaðið í gærkvöld.

Gylfi brunar í bæinn

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands.

Skora á Gylfa að segja af sér

Þingmenn Hreyfingarinnar skora á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, að segja af sér.

Bjarni Ben: Gylfi getur ekki firrt sig ábyrgð

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að viðskiptaráðherra geti ekki firrt sig ábyrgð á því að ekki hafi verið gripið aðgerða vegna upplýsinga sem viðskiptaráðuneytið bjó yfir um ólögmæti gengistryggðra lána. Bjarni segir málið það alvarlegt að kalla verði Alþingi saman og þá telur hann að ríkisstjórnin eigi að víkja.

Gylfi situr áfram í embætti

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mun sitja áfram í embætti, segir Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður hans, í samtali við Vísi.

Hefði átt að vita meira um málaflokkinn

Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur minnir á að ráðherra beri pólitíska ábyrgð á sínum málaflokki og því sem embættismenn undir honum vinna að. „Ef eitthvað fer úrskeiðis þá ber ráðherra ábyrgð gagnvart þinginu og verður að svara fyrir það,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi að ef forveri Gylfa, Björgvin G. Sigurðsson, segðist ekki hafa vitað neitt í aðdraganda bankahrunsins, þá væri það engin afsökun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×