Jóhanna vill fá svör frá Gylfa - Ráðherrar telja hann í vondum málum 13. ágúst 2010 14:11 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Forsætisráðherra mun ekki ræða við fjölmiðla um stöðu Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrr en Gylfi sjálfur útskýrir mál sitt fyrir henni, samkvæmt upplýsingum úr stjórnarráðinu. Ráðherrar hafa í dag sagt í trúnaði að þeir meti stöðu Gylfa sem mjög erfiða og Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur sagði í fréttum RÚV í gær að staða hans hefði veikst. Álitaefnin, sem telja má að Jóhanna Sigurðardóttir vilji vita um, eru meðal annars afdrif gagna um gengistryggingu lána sem embættismenn Gylfa höfðu undir höndum í maí og júní 2009, en hann segist ekki hafa vitað af. Samkvæmt gögnunum eru gengistryggð krónulán ólögmæt. Eins og fram hefur komið, svo sem í Fréttablaðinu í dag, voru þessi gögn kynnt fyrir Gylfa 24. júní sama árs. Svar Gylfa við fyrirspurn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur á Alþingi þykir einnig þarfnast nánari útskýringa. Ragnheiður spurði þann 1. júlí 2009 um gengistryggð krónulán, en Gylfi svaraði með því að tala um erlend lán og sagði þau lögmæt og að lögfræðingar víða í stjórnsýslunni hefðu skoðað það mál, þótt dómstólar þyrftu að skera úr um þetta „telji einhverjir að þessi lán séu ólögmæt". Með þessu svari, að mati Gunnars Helga, afvegaleiddi Gylfi þingið. Þingmenn Hreyfingarinnar skoruðu á Gylfa í dag að segja af sér, en bera fram vantrauststillögu á hann ella. Gylfi Magnússon er úti á landi, utan símasambands.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira