Innlent

Yfirheyrður vegna nauðgunar

Lögreglustöðin Lögregla hefur yfirheyrt karlmann vegna nauðgana um síðustu helgi.
Lögreglustöðin Lögregla hefur yfirheyrt karlmann vegna nauðgana um síðustu helgi.

Karlmaður hefur verið yfirheyrður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna nauðgunar sem kærð var eftir síðustu helgi. Þá kannar lögregla vísbendingar varðandi annan meintan nauðgara.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni kærðu tvær stúlkur nauðgun eftir síðustu helgi. Önnur þeirra er sautján ára og hin um tvítugt. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins kærði sú sautján ára nauðgun sem átti sér stað á skemmtistað í borginni.

Eldri stúlkan kærði mann fyrir að nauðga sér í bíl. Eftir því sem næst verður komist ók hún nokkrum piltum, þar af einum sem hún þekkti. Piltarnir tíndust úr bílnum, þar til einungis einn var eftir. Hann er kærður fyrir að hafa nauðgað stúlkunni.

Báðar stúlkurnar leituðu á neyðarmóttöku Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi fyrir þolendur kynferðisofbeldis eftir árásirnar. Þær voru báðar með áverka eftir ofbeldið.

Hvorug stúlknanna mun hafa þekkt ofbeldismanninn sem þær urðu fyrir barðinu á.

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur rannsókn málsins með höndum.

- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×