Erlent

Flugliðar rétta fram sáttahönd

Verkfalli flugliða hjá British Airways verður aflýst ef flugmiðafríðindum starfsmanna verður aftur komið á. Þetta sagði verkalýðsforkólfurinn Tony Woodley eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum milli deiluaðila í dag. Fimm daga verkfall er boðað frá miðnætti í kvöld.

Starfsmennirnir hafa gagnrýnt harðlega niðurskurðaráætlanir flugfélagsins, en Willie Walsh, forstjóri félagsins, segir verkalýðsforkólfa ekkert skeyta um venjulegt fólk. Hann fullyrðir að verkfallið muni ekki hafa áhrif á ferðalög viðskiptavina British Airways.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×