Sjúkrabílstjóri sektaður fyrir brot á umferðarlögum 9. febrúar 2010 15:24 Sjúkrabíllinn skemmdist töluvert eins og sjá má. MYND/GVA
Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut. Rautt ljós kviknaði rétt áður en hann kom að gatnamótunum og sagðist ökumaður sjúkrabílsins hafa litið yfir gatnamótin og engan bíl séð. Engu að síður ók bíll sem var á leið suður Njarðargötuna inn í hlið sjúkrabílsins með þeim afleiðingum að hann valt. Ökumaður þess bíls sagðist ekki hafa heyrt í sírenum sjúkrabílsins né séð blikkljós hans. Önnur vitni bera þó að þau hafi heyrt og séð sjúkrabílinn koma inn á gatnamótin. Talið er að sjúkrabíllinn hafi verið á um sextíu kílómetra hraða á klukkustund og hinn bílstjórinn kvaðst hafa verið á um 50 kílómetra hraða. Dómari kemst að því að ökumanni sjúkrabílsins hafi borið að sýna sérstaka varúð þegar hann ók yfir gatnamótin. Hraðinn hafi hinsvegar verið of mikill því honum tókst ekki að stöðva bílinn tafarlaust og því hafi hann ekki sýnt þá varúð sem honum bar að sýna við akstur um gatnamót. „Breytir engu um þess niðurstöðu að ákærði hafði uppi hljóð- og ljósmerki á sjúkrabifreiðinni. Það er því niðurstaða dómsins að ákærði hafi gerst sekur um það sem honum er gefið að sök í ákærunni og er brot hans þar rétt fært til refsiákvæða," segir í dómsorði. Maðurinn var því dæmdur til að greiða 60 þúsund krónur í sekt auk þess sem hann þarf að standa skil á greiðslu sakarkostnaðar að upphæð 425 þúsund krónur.
Mest lesið Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Veður Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Innlent Fleiri fréttir Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd „Þau eru að herja á börnin okkar“ Sjá meira