Innlent

Sjúkrabílstjóri sektaður fyrir brot á umferðarlögum

Sjúkrabíllinn skemmdist töluvert eins og sjá má.
Sjúkrabíllinn skemmdist töluvert eins og sjá má. MYND/GVA

Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut.

Rautt ljós kviknaði rétt áður en hann kom að gatnamótunum og sagðist ökumaður sjúkrabílsins hafa litið yfir gatnamótin og engan bíl séð. Engu að síður ók bíll sem var á leið suður Njarðargötuna inn í hlið sjúkrabílsins með þeim afleiðingum að hann valt. Ökumaður þess bíls sagðist ekki hafa heyrt í sírenum sjúkrabílsins né séð blikkljós hans. Önnur vitni bera þó að þau hafi heyrt og séð sjúkrabílinn koma inn á gatnamótin.

Talið er að sjúkrabíllinn hafi verið á um sextíu kílómetra hraða á klukkustund og hinn bílstjórinn kvaðst hafa verið á um 50 kílómetra hraða. Dómari kemst að því að ökumanni sjúkrabílsins hafi borið að sýna sérstaka varúð þegar hann ók yfir gatnamótin. Hraðinn hafi hinsvegar verið of mikill því honum tókst ekki að stöðva bílinn tafarlaust og því hafi hann ekki sýnt þá varúð sem honum bar að sýna við akstur um gatnamót.

„Breytir engu um þess niðurstöðu að ákærði hafði uppi hljóð- og ljósmerki á sjúkrabifreiðinni. Það er því niðurstaða dómsins að ákærði hafi gerst sekur um það sem honum er gefið að sök í ákærunni og er brot hans þar rétt fært til refsiákvæða," segir í dómsorði. Maðurinn var því dæmdur til að greiða 60 þúsund krónur í sekt auk þess sem hann þarf að standa skil á greiðslu sakarkostnaðar að upphæð 425 þúsund krónur.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×