Yfir 500 hús eru ónýt eftir jarðskjálfta 6. september 2010 03:15 Sprunga sem er allt að 3,5 metrar á breidd myndaðist í jarðskjálftanum og urðu víða skemmdir á húsum og vegum vegna hennar.Fréttablaðið/AP
Í það minnsta 500 hús í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi eru hrunin eftir jarðskjálfta sem reið yfir á föstudag og fjöldi húsa til viðbótar skemmdist. Mikil mildi þykir að enginn hafi látist og aðeins tveir slasast illa. Skjálftinn, sem var um 7,1 að styrkleika, varð klukkan 4.35 að laugardagsmorgni þegar flestir íbúar voru í fastasvefni. „Ef skjálftinn hefði orðið fimm klukkustundum fyrr eða fimm klukkustundum seinna hefði manntjónið getað orðið gríðarlegt,“ sagði John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands. Um 400 þúsund manns búa í Christchurch. Rafmagni sló út í borginni og nærsveitum vegna skjálftans, og vatns- og gasleiðslur fóru í sundur. Rafmagn var komið á víðast hvar á sunnudag, en ekki hafði tekist að koma öðrum leiðslum í lag. Stórir vatnsdunkar og færanleg klósett voru flutt í hverfi þar sem enn var vatnslaust í gær. Einhver tími mun líða þar til lífið kemst í samt lag í Christchurch. Skólar verða lokaðir næstu daga þar til gengið hefur verið úr skugga um að þeir séu íveruhæfir. Nýja-Sjáland liggur á flekamótum Kyrrahafsflekans og Ástralíuflekans. Jarðskjálftar eru algengir þar sem flekarnir rekast saman. Mark Quigley, jarðfræðiprófessor við Canterbury háskóla á Nýja-Sjálandi, segir að svo virðist sem ný brotalína hafi myndast í skjálftanum. Sprunga myndaðist og jörðin lyftist á sumum stöðum allt að tvo metra upp, segir Quigley. „Þetta er löng brotalína sem hefur rústað húsum og klofið í sundur vegi,“ segir Quigley. „Við sáum tvö hús sem höfðu brotnað í tvennt í skjálftanum.“ „Jörðin mín lítur út eins og úfinn sjór núna,“ segir Roger Bates, bóndi sem á kúabú skammt frá upptökum skjálftans. Hann segir að jörðin hafi gengið í öldum, og hækkunin þar sem brotalínan gangi í gegn sé allt að 1,5 metrar. Sérfræðingar telja að manntjón í skjálftanum hafi verið lítið vegna strangra reglna um húsbyggingar á Nýja-Sjálandi. Reglurnar voru hertar til muna fyrir tíu árum. Jarðskjálftar eru algengir á Nýja-Sjálandi. Um 1.400 skjálftar verða á hverju ári, en aðeins 150 eru nægilega öflugir svo íbúar verði varir við þá. Síðasti öflugi jarðskjálftinn sem reið yfir eyjarnar varð í júlí 2009. Hann var 7,8 að styrkleika, svo öflugur að hann færði suðurodda landsins 30 sentimetrum nær Ástralíu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Allir mennir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira