Innlent

Vill nýjan byskup

Valur Grettisson skrifar
Vill nýjan „byskup“.
Vill nýjan „byskup“. Mynd / Steingrímur J. Þórðarson.

Einn mótmælandi stendur fyrir utan Biskupsstofu á Laugaveginum og krefst þess, samkvæmt skilti sem hann heldur á, að nýr biskup taki við starfinu.

Ekki er vitað hver maðurinn er en hann hefur vakið athygli vegfarenda sem meðal annars sendu meðfylgjandi mynd. Á skiltinu stendur „Nýjan Byskup".

Þegar blaðamaður falaðist eftir því að ræða við hann um sjónarmið sín svaraði hann því til að hann hefði ekkert meira um málið að segja.

Væntanlega er maðurinn að mótmæla vegna umræðunnar um kynferðisofbeldi innan kirkjunnar. Þá krafðist Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtssókn, um helgina að Karl Sigurbjörnsson, biskup, segði af sér.

Svo virðist sem mótmælandinn taki undir orð hennar og sé sammála því að það þurfi nýjan biskup.

Að gefnu tilefni þá notar mótmælandinn fornan rithátt á orðinu biskup. Rithátturinn byskup er ekki rangur þó orðið sé almennt ekki ritað þannig í dag. Það er dregið af orðinu skyggnist sem er bein þýðing á gríska orðinu episkopos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×