Skógareldar orðið 25 að bana í Rússlandi 31. júlí 2010 05:00 Vladimir Pútín forsætisráðherra Rússlands ferðaðist um svæðin sem hafa orðið hvað verst úti í skógareldunum. nordicphotos/afp
Minnst 25 hafa látist í skógareldum í Rússlandi síðustu tvo daga. Eldar hafa breiðst út yfir um 90 þúsund hektara svæði undanfarna daga, í kjölfar mikilla hita í landinu. Hitamet var slegið í síðustu viku og júlímánuður var heitasti mánuður í Moskvu frá því að hitamælingar hófust fyrir 130 árum. Miklir þurrkar eru á ökrum og í skógum og hefur uppskera eyðilagst að mestu. Vladimir Pútín forsætisráðherra heimsótti svæðið í gær og fór meðal annars til eins þriggja smábæja sem brunnu til kaldra kola tæpum 500 kílómetrum austan við Moskvu. Pútín lofaði íbúum þar því að öll húsin í bænum, 341, yrðu endurbyggð fyrir veturinn. Þá lofaði hann hverjum bæjarbúa 200 þúsund rúblum, um 780 þúsund krónum, í skaðabætur. Voronezh, borg sunnan við Moskvu er nánast umkringd af skógareldunum, og þurfti meðal annars að flytja sjúklinga af sjúkrahúsum í flýti í gær. Pútín hvatti í gær Medvedev forseta til þess að senda herlið til að aðstoða við að slökkva eldana. Þá sagði hann að allir opinberir starfsmenn sem eigi aðild að björgunarmálum verði rannsakaðir sérstaklega til að komast að því hvort einhverjir hafi brugðist í starfi. - þeb
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fleiri fréttir Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Sjá meira