Ekki hægt að safna upp skuldum 16. janúar 2010 06:00 Leifur A. Haraldsson
Fyrirtækið Kredia, sem veitir svokölluð sms-smálán, rekur ábyrga lánastarfsemi þar sem fólk getur ekki safnað upp skuldum, segir Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia. Fyrirtækið veitir lán til fimmtán daga þeim sem skrá sig á heimasíðu fyrirtækisins, og senda svo sms til að fá lánið. Fyrsta lán er aldrei hærra en 10 þúsund krónur, með 2.500 króna kostnaði, og hæsta mögulega lánið 40 þúsund krónur, með 9.250 króna kostnaði. Ekki er hægt að fá nýtt lán fyrr en fyrra lán hefur verið greitt upp. Fyrirkomulag sms-lánanna hefur verið gagnrýnt harðlega, og hafa Neytendasamtökin óskað eftir því að viðskiptaráðherra kanni hvort hægt sé að koma í veg fyrir slíka lánastarfsemi hér á landi. Leifur segir alla umræðu um að hægt sé að steypa sér í skuldir með sms-lánum vekja furðu. Ekki sé hægt að skulda fyrirtækinu meira en 49.511 krónur með kostnaði. Við það bætist þó innheimtukostnaður sé skuldin ekki greidd á réttum tíma. Ekki fæst upp gefið hversu margir hafa tekið lán frá fyrirtækinu, né hversu mörg tilvik hafi farið í löginnheimtu. Leifur segir lánin vinsæl og mjög lágt hlutfall hafi farið í innheimtu. Kredia kynnti starfsemi sína á fundi með fulltrúum Neytendastofu og Fjármálaeftirlitsins í nóvember í fyrra. Á þeim fundi kom fram að starfsemin sé samkvæmt lögum og uppfyllii allar kröfur sem lagðar eru á starfsemi af þessu tagi, segir Leifur.- bj
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira